Norræna ráðherranefndin 1992--1993

135. fundur
Föstudaginn 19. mars 1993, kl. 16:09:54 (6317)

     Hjörleifur Guttormsson (um þingsköp) :
    Virðulegur forseti. Ég hefði talið eðlilegt að það lægi fyrir með hvaða hætti ætti að standa að þessari umræðu hér til loka. Það hefur ekki verið greint frá því hér í forsetastóli og mér finnst nauðsynlegt að það liggi fyrir með hvaða hætti forusta þingsins ætlar að halda á þessu máli.