Ferill 52. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 52 . mál.


54. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um útboð á vegum félagsmálaráðuneytisins á árinu 1991 til og með 31. ágúst 1992.

Frá Finni Ingólfssyni.



    Hversu mörg útboð í vöru, þjónustu og framkvæmdir voru á vegum ráðuneytisins og stofnana, sem undir það heyra, á árinu 1991 til og með 31. ágúst 1992?
    Hvaða útboð voru þetta?
    Í hve mörgum og hvaða tilvikum var lægsta tilboði tekið?
    Í hve mörgum og hvaða tilvikum var lægsta tilboði ekki tekið? Hvaða rökstuddu ástæður lágu að baki þeirri ákvörðun?


Skriflegt svar óskast.