Ferill 74. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 74 . mál.


76. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um opinber fjárframlög til mannvirkjagerðar vegna móttöku ferðamanna á helstu innkomustöðum til landsins.

Frá Jónasi Hallgrímssyni.



    Hver er heildarkostnaður við flugstöðvarbyggingu (Leifsstöð) á Keflavíkurflugvelli og tilheyrandi aðstöðu? Hver er farþegafjöldi á ári sl. fimm ár?
    Hver er heildarkostnaður við breytingar og aðstöðubætur á Reykjavíkurflugvelli vegna farþegaflugs til og frá landinu? Hver er farþegafjöldi á ári hverju sl. fimm ár?
    Hver er heildarkostnaður við breytingar og aðstöðubætur vegna beins flugs til Akureyrar erlendis frá? Hver er fjöldi farþega frá því að þessi starfsemi hófst skipt eftir árum?
    Hver er heildarkostnaður framkvæmda vegna móttöku ferðamanna á Seyðisfirði frá því að siglingar hófust með farþegaskipum þangað? Hver er fjöldi farþega á ári sl. fimm ár?
    Hvaða aðilar, opinberir og einkaaðilar, hafa lagt fé til fyrrgreindra mannvirkja og hve mikið hver?



Skriflegt svar óskast.