Ferill 59. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 59 . mál.


118. Svar



sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Finns Ingólfssonar um útboð á vegum sjávarútvegsráðuneytisins á árinu 1991 til og með 31. ágúst 1992.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hversu mörg útboð í vöru, þjónustu og framkvæmdir voru á vegum ráðuneytisins og stofnana, sem undir það heyra, á árinu 1991 til og með 31. ágúst 1992?
    Hvaða útboð voru þetta?
    Í hve mörgum og hvaða tilvikum var lægsta tilboði tekið?
    Í hve mörgum og hvaða tilvikum var lægsta tilboði ekki tekið? Hvaða rökstuddu ástæður lágu að baki þeirri ákvörðun?


    Á umræddu tímabili, þ.e. frá 1. janúar 1991 til og með 31. ágúst 1992, voru engin útboð á vegum sjávarútvegsráðuneytisins.