Ferill 165. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 165 . mál.


190. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um framkvæmd ýmissa ákvæða sjómannalaga.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



    Hver er réttarstaða íslenskra sjómanna sem ráðnir eru á erlend kaupskip í leigu hjá íslenskum kaupskipaútgerðum, sbr. 1. gr. sjómannalaga?
    Hefur samgönguráðuneytið sett nánari reglur um form ráðningarsamnings milli útgerðarmanns og skipverja, sbr. 6. gr. laganna? Ef svo er ekki, telur ráðherra ekki ástæðu til að reglur um form og efni ráðningarsamninga verði settar?
    Hefur samgönguráðherra sett reglur um læknisskoðun skipverja skv. 3. mgr. 8. gr. sjómannalaga?


Skriflegt svar óskast.