Ferill 432. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 432 . mál.


732. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um dagpeninga.

Frá Kristínu Ástgeirsdóttur.



    Hversu margir einstaklingar fengu greidda dagpeninga frá ríkinu að upphæð 400 þús. kr. eða meira á árinu 1992?
    Hversu margir einstaklingar fengu dagpeninga að upphæð 400 þús. kr. eða meira
         
    
    til ferða innan lands,
         
    
    til utanferða,
         
    
    til ferða bæði innan lands og utan?


Skriflegt svar óskast.