Ferill 474. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 474 . mál.


817. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um kostnað við sölu á spariskírteinum ríkissjóðs og við Lánasýslu ríkisins.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



    Hve mikill var kostnaðurinn við auglýsingar og sölu á spariskírteinum ríkissjóðs á árinu 1992 samanborið við árin 1987–1991? Óskað er eftir að kostnaðurinn sé sundurliðaður.
    Hver er kostnaðurinn við starfsemi Lánasýslu ríkisins frá því að hún var sett á stofn og hverjir eru helstu kostnaðarliðirnir?


Skriflegt svar óskast.