Ferill 475. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 475 . mál.


818. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um skilyrði útvarps- og sjónvarpssendinga í Austurlandskjördæmi.

Frá Jóni Kristjánssyni.



    Hvaða svæði í Austurlandskjördæmi njóta ekki viðunandi sjónvarpsskilyrða eða sendinga Rásar 2?
    Hvaða áform eru uppi um að bæta skilyrðin þar sem þau eru ófullnægjandi?
    Mun Ríkisútvarpið semja við Póst og síma um afnot af ljósleiðara til þess að bæta útsendingar útvarps og sjónvarps og ef svo er, hvenær er niðurstöðu að vænta af þeim samningum?


Skriflegt svar óskast.