Ferill 509. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 509 . mál.


862. Fyrirspurn



til forsætisráðherra um störf og starfsemi í opinberri þjónustu á landsbyggðinni.

Frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur.



    Hvað líður störfum nefndar sem skipuð var af ríkisstjórninni til að kanna flutning á starfsemi ríkisstofnana út á land?
    Hefur störfum í opinberri þjónustu á landsbyggðinni fjölgað sl. tvö ár?
    Hvernig dreifast störf í opinberri þjónustu hlutfallslega niður á landið í heild eftir kjördæmum og hve stórt hlutfall eru þau af störfum í hverju kjördæmi?



Skriflegt svar óskast.