Ferill 582. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 582 . mál.


1165. Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Hjörleifs Guttormssonar um vörslu minja í umsjá Þjóðminjasafnsins.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig er staðið að vörslu minja í umsjá Þjóðminjasafnsins?
    Hvernig var staðið að vörslu bátaskemmunnar sem brann aðfaranótt 23. apríl sl.?
    Telur ráðherra forsvaranlegt að börn hafi óátalið fengið að nota bátaskemmuna sem leikvöll vikum saman fyrir brunann?
    Til hvaða ráða verður gripið af hálfu Þjóðminjasafns og menntamálaráðuneytis til að koma í veg fyrir að slíkir atburðir endurtaki sig?


    Með vísan til bréfs dags. 4. maí sl. sendist eftirfarandi skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1023 um vörslu minja í umsjá Þjóðminjasafnsins.
    1. Samkvæmt upplýsingum þjóðminjavarðar er öryggiskerfi í Þjóðminjasafninu og húsnæði í þess eign með eftirfarandi hætti:
    Í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu er varnarkerfi gegn innbrotum. Enginn óviðkomandi á að geta komist inn í húsið þegar þar er engin starfsemi án þess að viðvörunarkerfi tengt stjórnstöð öryggisgæslufyrirtækis fari í gang. Strax og slík boð fara í gang eru gerðar viðeigandi ráðstafanir. Við kerfið eru einnig tengdir nemar sem skynja hita og reyk og gera viðvart. Berist slík boð er þegar í stað haft samband við slökkvilið.
    Á efri hæð hússins eru rakaskynjarar. Verði leki eða springi lagnakerfi berast boð til viðvörunarkerfisins sem sendir þau áfram. Rakaskynjarar eru einnig í ljósmyndastofu á jarðhæð hússins.
    Vinnupallar standa við austurhlið hússins. Við þá eru tengdir nemar sem senda boð um óviðkomandi umgang.
    Brunavörnum innan húss er þannig háttað að handslökkvitæki eru á nokkrum stöðum og brunaslöngur tengdar vatnslögn hússins eru á hverri hæð. Fyrir sýningarsölum eru járnhurðir en ekki er um aðra hólfun að ræða.
    Að mati þjóðminjavarðar þarf enn að auka öryggisbúnað hússins og opna leið út úr húsinu á suðurgafli. Skortur á viðhaldi hússins um langt árabil hefur skapað ákveðna öryggishættu, einkum hvað varðar rafmagn og hitalagnir.
    Í Sjóminjasafni Íslands í Hafnarfirði, sem er deild í Þjóðminjasafni Íslands, eru nýleg eldvarnakerfi og eldtefjandi plötur voru settar í veggi við endurbyggingu hússins fyrir nokkrum árum. Brunaslöngur og slökkvitæki eru í húsinu ásamt brunakerfi sem tengt er Slökkvistöð Hafnarfjarðar. Innbrotakerfi frá öryggisgæslufyrirtæki er einnig í húsinu.
    Í Nesstofu á Seltjarnarnesi er verið að setja upp innbrotakerfi.
    Í geymslu Þjóðminjasafns við Vesturvör í Kópavogi er brunaviðvörunarkerfi tengt slökkvistöð. Áformað er að setja þar upp innbrotakerfi. Með geymslu Þjóðminjasafns í Dugguvogi er reglulegt eftirlit ákveðins aðila sem hefur með öryggisvörslu í hverfinu að gera. Ákveðið hefur verið að auka öryggisvarnir í Dugguvogi enda liggur fyrir nýleg öryggisúttekt á húsnæðinu.
    Ekki liggja fyrir upplýsingar um öryggismál á öllum byggðasöfnum. Sérfræðingar Þjóðminjasafns Íslands hafa á undanförnum missirum heimsótt hvert byggðasafnið af öðru og gert þar allsherjarúttekt, þar á meðal hvað varðar öryggisbúnað og eldvarnir. Skýrslur liggja fyrir um 14 byggðasöfn og nokkur önnur minjasöfn. Víðast hvar hefur brunavarnarúttekt einnig verið gerð á vegum Eldvarnareftirlits eða Brunamálastofnunar á síðustu árum. Aðeins er innbrota- og viðvörunarkerfi tengt lögreglu eða slökkviliði á fjórum þessara byggðasafna. Undantekningarlítið eru handslökkvitæki í söfnunum.
    Þjóðminjasafn Íslands á eða hefur umsjón með á fjórða tug friðaðra húsa og kirkna víða um land. Mörg þessara húsa eru torfhús án rafmagns og sum fjarri alfaraleið. Ekki er hægur leikur að koma þar við brunavörnum eða innbrotakerfi og óhugsandi sums staðar.
    2. Bátum í eigu Þjóðminjasafnsins var komið fyrir í skemmu við Vesturvör í Kópavogi árið 1990. Sú skemma var ætluð til geymslu annarra hluta. Bátarnir fóru ekki vel inni í heitu og þurru húsi og því fékkst leyfi til að reisa einfalt skýli á lóðinni við Vesturvör. Var það hannað sem vandað bráðabirgðaskýli, ekki eiginlegt hús heldur nánast sem rimlahjallur með sterkri grind, járnþaki og klæðningu niður á veggi en rimlum fyrir neðan. Skýlið var læst, vindur lék vel um og bátarnir voru varðir gegn sjó og regni, þornuðu hægt og áttu ekki að skemmast frekar. Fékkst leyfi fyrir þessari byggingu hjá Kópavogskaupstað sem bráðabirgðaskýli, en ekki var farið fram á að reisa eiginlegt hús því að svæðið var ekki skipulagt. Varanleg bygging hefði þurft að taka mið af skipulagi. Geymslan varð ódýr því að kostnaði varð að halda innan marka en þó þjónaði hún mjög vel tilgangi sínum meðan allt var með felldu.
    Þessi bátageymsla var reist innan læstrar girðingar og áttu engar mannaferðir að vera þar um. Bátarnir voru settir inn í hana jafnóðum og hún var reist, sumir stóðu á malarfyllingunni en aðrir minni voru hafðir uppi á bitum því að reynt var að nýta plássið vel, enda gert ráð fyrir að um 20 bátar kæmust þarna inn og voru 18 settir þangað. Ekki voru hafðar stórar dyr á skýlinu þar eð ekki var gert ráð fyrir að bátar yrðu teknir úr því fyrr en þeir yrðu settir á endanlegan stað en hefði þess þurft var gert ráð fyrir að skrúfa frá stoðir og bita og hefði tekið einhverja klukkutíma að opna skýlið þannig og ganga frá því aftur. Hins vegar átti að vera rúm til að gera við eða lagfæra báta þarna inni.
    Eftir að skýlið var reist var sett þar inn unnið rekaviðartimbur, sem ætlað var til viðgerðar gamalla húsa Þjóðminjasafnsins, og einnig viðir úr gömlum hjalli sem áhugamenn sóttu vestur í Vatnsfjörð sl. haust.
    Ekkert rafmagn var í skýlinu né upphitun og átti engin hætta að vera þar af íkviknun innan frá. Ekki hvarflaði að mönnum að kveikt kynni að verða í skýlinu því að óviðkomandi mannaferð yrði engin þar. Þar væri engra verðmæta að leita og ekki talið að neinn sæi tilgang í að brjótast þar inn né vinna spellvirki. Því var ekki settur sérstakur viðvörunarbúnaður í skýlið, en eldviðvörunarkerfi tengt slökkvistöð var hins vegar í skemmunni stóru á lóðinni.
    3. Eins og fram hefur komið var bátaskemman innan læstrar girðingar og átti engin mannaferð að vera þar um. Enginn hafði orðið var við börn að leik í bátaskemmunni og var þeim því aldrei heimilað að vera þarna. Það er mikið ólán að börnin skuli hafa orðið völd að bruna bátanna.
    4. Ráðuneytið hefur í samráði við Þjóðminjasafnið og Brunamálastofnun óskað eftir því við Brunamálastofnun að stofnunin hlutist til um að úttekt verði gerð á öllum söfnum á landinu. Þegar sú úttekt liggur fyrir mun ráðuneytið íhuga að boða safnafólk til fundar til að ræða þessi mál. Brunavarnir verða vafalaust forgangsatriði.
    Við fjárveitingar úr ríkissjóði til starfsemi byggðasafna hlýtur það meginskilyrði að vera sett af hálfu þjóðminjaráðs að brunavarnir séu fullnægjandi.