Ferill 576. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1992–93. – 1062 ár frá stofnun Alþingis.
116. löggjafarþing. – 576 . mál.


1167. Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Hjörleifs Guttormssonar um úrbætur í móttökuskilyrðum sjónvarps og hljóðvarps á Djúpavogi og nágrenni.

    Hvenær er þess að vænta að ráðin verði bót á slæmum móttökuskilyrðum fyrir sjónvarp og hljóðvarp á Djúpavogi og nágrenni?

    Ljósleiðari liggur ekki um öll sendihús Ríkisútvarpsins, en í athugun er hjá Pósti og síma hvort unnt sé að leggja ljósleiðara í sendihús Ríkisútvarpsins á sunnanverðum Austfjörðum. Þeirri athugun er ekki lokið, en búast má við svari á næstu dögum. Í kjölfar þeirrar niðurstöðu má búast við ákvörðun af hálfu Ríkisútvarpsins um að leigja ljósleiðara á þessu svæði til óákveðins tíma. Langtímalausnir eru í athugun.
    Ítarlegri upplýsingar um þessi atriði er að finna í nýlegu svari við fyrirspurn frá Jóni Kristjánssyni um skilyrði útvarps- og sjónvarpssendinga í Austurlandskjördæmi.