Setning bráðabirgðalaga og ummæli forseta

74. fundur
Mánudaginn 24. janúar 1994, kl. 15:20:40 (3308)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Tími sá sem leyfður er samkvæmt þingsköpum til þessarar umræðu sem hér hefur farið fram er liðinn. Það er því ekki hægt að gefa fleirum tækifæri til að tala að þessu sinni um störf þingsins. ( ÓÞÞ: Það fær ekki staðist.) Þessi umræða má standa í 20 mín. ( ÓÞÞ: Það fær ekki staðist að tíminn sé liðinn. Það má leggja það saman hvað menn hafa talað. Umræðan á að standa í 20 mín. Þetta er bara vitleysa.)