Rannsókn kjörbréfs

74. fundur
Mánudaginn 24. janúar 1994, kl. 15:20:46 (3309)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 21. jan. 1994:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með tilvísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþingmaður Framsfl. í Norðurlandskjördæmi eystra, Guðmundur Stefánsson framkvæmdastjóri, Akureyri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti.
Guðmundur Bjarnason, 1. þm. Norðurl. e.``


    Guðmundur Stefánsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.


    Þá hefur borist bréf, dags. 18. jan. 1994:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að þar sem 1. varaþingmaður Alþb. í Norðurlandskjördæmi vestra getur ekki vegna sérstakra anna tekið sæti á Alþingi taki 2. varaþingmaður, Anna Kristín Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, Sauðárkróki, sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti.

Ragnar Arnalds, 3. þm. Norðurl. v.``


    Þá er hér bréf, dags. 18. jan. 1994:
    ,,Vegna sérstakra anna sé ég mér ekki fært að taka sæti Ragnars Arnalds á Alþingi næstu tvær vikur sem 1. varaþingmaður Alþb. í Norðurlandskjördæmi vestra.
Virðingarfyllst, Sigurður Hlöðvesson.``


    Anna Kristín Gunnarsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.