Rannsókn kjörbréfs

74. fundur
Mánudaginn 24. janúar 1994, kl. 15:24:52 (3310)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur bréf, dags. 18. jan. 1994.
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að þar sem 1. varaþingmaður Alþfl. í Norðurlandskjördæmi eystra getur ekki vegna sérstakra anna tekið sæti sitt á Alþingi taki 2. varaþingmaður, Pálmi Ólason skólastjóri, Ytri Brekkum, sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti, með ósk um að fram fari á Alþingi rannsókn á kjörbréfi varaþingmannsins.
Sigbjörn Gunnarsson, 7. þm. Norðurl. e.``


    Borist hefur bréf, dags. 18. jan. 1994:
    ,,Vegna sérstakra anna sé ég mér ekki fært að taka sæti Sigbjörns Gunnarssonar á Alþingi næstu tvær vikur sem 1. varaþingmaður Alþfl. í Norðurlandskjördæmi eystra.
Sigurður E. Arnórsson,

1. varaþm. Alþfl. í Norðurl. e.``


    Kjörbréf Pálma Ólasonar hefur ekki verið rannsakað og þarf því kjörbréfanefnd að koma saman til fundar og rannsaka kjörbréf hans. Verður nú gert fimm mínútna hlé á þessum fundi á meðan.