[15:29]
Steingrímur J. Sigfússon (andsvar) :
Hæstv. forseti. Það er nú svo að þessi umræða er að þróast inn á nokkuð sérkennilegar brautir. Hér koma stjórnarliðar, tveir þeir síðasttöldu hv. ræðumenn, og tala eiginlega í hring, byrja á því að lýsa sig andvíga beitingu bráðabirgðalaga en lýsa því svo yfir í lokin að þeir styðji þau. Og hv. síðasti ræðumaður Einar K. Guðfinnsson hafði þá málsvörn helsta að vísa í málflutning hv. 1. þm. Austurl., fyrrv. sjútvrh. Halldórs Ásgrímssonar sem hann titlaði úr þessum virðulega ræðustóli hvorki meira né minna en sem sérstakan ráðgjafa ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegsmálum. ( Gripið fram í: Hann er það.) Og er þar með sú nafngift komin inn í þingtíðindin og fer ekki þaðan. ( Gripið fram í: Staðfest af ráðherranum.) Staðfest af ráðherra og hér kinka menn kolli unnvörpum úti í salnum þannig að þetta er alveg geirneglt. ( Sjútvrh.: Deilan stendur um launamál.) Deilan stendur um launamál, já. En svo gerist það hins vegar að hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson kemur hér og reynir að þvo þennan virðingartitil af samþingmanni sínum Halldóri Ásgrímssyni og reyndar hafði hv. þm. Stefán Guðmundsson komið hér og lýst sig algerlega andvígan setningu bráðabirgðalaga.
( Forseti (VS) : Hv. þm. er í andsvari við síðasta ræðumann.)
Já, það er alveg ljóst, hæstv. forseti, ég er það. Hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson vildi a.m.k. gera þá athugasemd við mál hv. þm. Einars K. Guðfinnssonar, að hafi um einhverja ráðgjöf verið að ræða af hálfu hv. þm. Halldórs Ásgrímssonar hafi hún verið ókeypis. Þannig að sennilega verðum við að draga þann lærdóm af þessum orðaskiptum að hv. þm. Halldór Ásgrímsson sé hægri hönd og sérstakur ráðgjafi ríkisstjórnarinnar, en hann vinni kauplaust.