[17:19]
Jóhann Ársælsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég held að þessi ræða hæstv. sjútvrh. lýsi því vel hvers konar vandamál er við að stríða í sjávarútvegsmálum. Maðurinn kemur upp í ræðustólinn eins og hann hafi ekki vitað hvað var að gerast í þessari deild og fer að tyggja upp einhverja hluti í sambandi við það hvernig félagsdómur kvað upp úrskurð sinn. Auðvitað veit hann betur. Hann veit um hvað deilan snýst í dag og hvað hún snerist um þá. Það hefur ekki neina þýðingu að vera með einhvern orðhengilshátt um þessa hluti. Deilan hefur snúist um stefnu ríkisstjórnarinnar í þessu máli og hún gerir það enn. Hún snýst um það að ríkisstjórnin vildi hafa áfram í gildi þetta kerfi um stjórn fiskveiðanna og þau ákvæði sem hafa valdið því að það hefur verið hægt að fara aftan að sjómönnum í sambandi við kjör þeirra.
Ef hæstv. sjútvrh. er ekki enn þá kominn úr þessum buxunum þá getur kannski orðið erfitt að leysa málið ef hann ætlar að halda sig við þau sjónarmið sem hann hefur hér verið að boða. Ég held að það væri miklu nær að menn slíðruðu vopnin og færu af þessari braut sem ríkisstjórnin hefur verið á og að hún loksins núna hunskaðist til þess að reyna að hafa samráð við alla aðila um að leysa þessi mál. Það er affarasælla en að halda fram einhverju tali um það að hér sé á ferðinni einhver grundvallarágreiningur á milli t.d. mín og sjómanna, sem er alls ekki.