Stöðvun verkfalls fiskimanna

76. fundur
Þriðjudaginn 25. janúar 1994, kl. 21:36:41 (3442)


[21:36]
     Stefán Guðmundsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Já, það var gott að fá þetta skýrt fram. Ég efaðist satt að segja um þetta þar sem hæstv. forsrh. sá ekki ástæðu til að ræða við þingmenn síns eigin flokks og þeir voru ekki tilbúnir að fara í smiðju með honum til þess að búa til þessa lagagerð. Þeir voru ekki tilbúnir til þess. Hér hefur það komið fram. En hér gengur vaskur maður fram úr þingliði Alþfl. sem lýsir því yfir að hann hafi tekið þetta verk að sér með mestu vinsemd.