Stöðvun verkfalls fiskimanna

76. fundur
Þriðjudaginn 25. janúar 1994, kl. 22:26:52 (3454)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Forseti hefur heyrt og meðtekið ósk hv. 8. þm. Reykn. Forseti telur að það séu engin efnisleg rök til þess að fresta þessari umræðu. Hún hefur staðið yfir í allan dag frá kl. 13.30 og er eina mál á dagskrá. Hæstv. forsrh. er erlendis og því telur forseti eðlilegt með tilliti til þingskapa og allra starfshátta og venju í þinginu að við leggjum áherslu á að ljúka þessari umræðu í kvöld og ekki seinna en í nótt.