Stöðvun verkfalls fiskimanna

76. fundur
Þriðjudaginn 25. janúar 1994, kl. 22:34:20 (3461)


[22:34]
     Svavar Gestsson :
    Virðulegi forseti. Ég ber af mér þær sakir að ég hafi farið rangt með þær upplýsingar sem ég hafði um lögskráningu í kringum bráðabirgðalögin og hafði frá ýmsum forustumönnum sjómannasamtakanna. Ég mun gera ráðstafanir til þess að þau mál verði könnuð til hlítar. Og ég fullyrði að þar kastar hæstv. dómsmrh. steini úr glerhúsi sjútvrh. vegna þess að þessar upplýsingar hef ég frá fleiri en einum manni og ég trúi því ekki að þeir séu að segja ósatt í þessu sambandi.