Stöðvun verkfalls fiskimanna

76. fundur
Þriðjudaginn 25. janúar 1994, kl. 22:55:34 (3474)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Forseti vill svo sannarlega eiga gott samstarf og náið samstarf við hv. þm. um stjórn þingsins en forseti verður að benda á að slíkt samstarf verður jafnan að vera gagnkvæmt. Forseti verður af þessu tilefni að vekja athygli hv. þm. á þingsköpum um stjórnunarábyrgð forsetans á þinginu samkvæmt ákvæðum þingskapa. Þess vegna óskar forseti eftir því að þingmenn taki tillit til stjórnunar forseta og einnig að þeir í ræðum sínum um að bera af sér sakir og fundarstjórn haldi sig við efni þeirra ákvæða þingskapa.