[23:36]
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (um fundarstjórn) :
Virðulegi forseti. Það er mjög leitt til þess að vita að hæstv. forseti skuli ekki hafa getað orðið við þessari beiðni. Forseti rökstyður það með því að það séu ekki nein efnisatriði til þess að verða við þessu. Ég vil minna á að það hefur komið fyrir áður að beðið hefur verið um að ákveðnir aðilar væru viðstaddir umræðu og í flestum tilfellum ef ekki öllum hefur verið orðið við því að fresta þeirri umræðu þar til viðkomandi gæti verið við.
Það breytir ekki því þó að þetta mál sé á forræði hæstv. sjútvrh. að beðið er um að hæstv. forsrh. geti líka verið til viðtals og svarað fyrir ýmsar spurningar sem hafa vaknað í umræðunni og er mjög leitt til þess að vita að ekki skuli hafa verið orðið við þessari beiðni okkar. Það er ekkert um það að ræða að vissulega liggur úrskurðarvaldið hjá hæstv. forseta og undir það verðum við að beygja okkur en ég tel að forseti sé ekki að úrskurða réttlátlega í þessu máli.