[14:43]
Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
Herra forseti. Vegna ummæla Jóhannesar Geirs Sigurgeirssonar, 6. þm. Norðurl. e., út af frv. til búvörulaga vil ég taka fram að það er verið að vinna að þessu máli á milli flokkanna og verið að reyna að ná fram frv. sem verði efnislega nákvæmt. Það liggur alveg fyrir og er yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar, var samþykkt á ríkisstjórnarfundi, að með þessu frv. og lagasetningu yrði gengið út frá því að viðhalda því ástandi sem að mínum skilningi á lögum er í landinu, að sú lagasetning sem Alþingi samþykkti 21. des. standi varðandi búvöruliðinn.
Ég veit að um þetta eru skiptar skoðanir. Ég veit hvaða skoðun ég hef á þeirri samþykkt Alþingis. Ég tel að beri að skilja hana eftir orðanna hljóðan. Þó það sé ekki beinlínis tekið fram í lögunum sjálfum þá er það nú ein grundvallarreglan í lögskýringum að það beri að skýra lög samkvæmt orðanna hljóðan. Og það er mín skoðun að sú breyting á lögunum fylli upp í það gat sem meiri hluti Hæstaréttar sagði í sínum úrskurði að væri á búvörulögum varðandi bann við innflutningi.
Ég tel á hinn bóginn að það sé nauðsynlegt að leysa úr þeirri réttaróvissu sem hæstaréttardómurinn skapaði og af þeim sökum hef ég lagt áherslu á að þetta frv. verði lagt fram. Ég sagði það á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudaginn var að það yrði að gerast strax eftir helgi og ég vil vonast til þess að það geti orðið í dag eða á morgun.