[14:46]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) :
Virðulegi forseti. Ég þarf ekki að endurtaka það sem sagt hefur verið hér, annars vegar af hæstv. landbrh., einungis að staðfesta það sem hann hefur sagt. Í umræðum á mánudaginn sagði hæstv. forsrh. að það hefði staðið til að leggja frv. fram í gær. Það tókst ekki vegna þess að tími vannst ekki til þess að fara ofan í örfá tæknileg atriði. Hæstv. umhvrh. sagði að það yrði lagt fram á næstu dögum og ég vil einungis staðfesta það sem kom fram hjá hæstv. landbrh. En ég fagna því að öðru leyti að menn skuli hafa áhuga á því að fá fram það mál því ég held líka eins og aðrir að það sé brýnt.
Í öðru lagi vil ég taka mjög sterklega undir það sem hv. 8. þm. Reykv., formaður þingflokks sjálfstæðismanna, sagði áðan og ég held að skipti afar miklu máli fyrir okkur öll sem erum í þessum þingsal og störfum hér nú, það er að hætta þessari leikfimi um það að einhverjir þingmenn, forsrh. eða aðrir ráðherrar, séu að ljúga að forseta Íslands. Það er fyrir neðan virðingu okkar allra að tala með þessum hætti þegar við vitum hvernig formið er á bráðabirgðalögum. Í bráðabirgðalögum á hverjum tíma segir að viðkomandi ráðherra hafi tjáð forseta Íslands. Það er engin skylda að segja forsetanum frá þessu, það er ekki heldur skylda forsetans að spyrja að því og auðvitað hefur nú sem endranær enginn logið að forseta Íslands.
Ég ætla að rifja það upp að 1982, þegar þáv. ríkisstjórn sat, lá það fyrir þegar bráðabirgðalög voru gefin út að tveir menn höfðu yfirgefið stjórnina í þeim skilningi að þeir ætluðu ekki að styðja viðkomandi bráðabirgðalög. Stjórnin hafði misst meiri hluta sinn á þingi. Það breytti í engu því að bráðabirgðalöggjafarvaldið var hjá ríkisstjórn þáv. forsrh., Gunnars Thoroddsens, og hún hafði engin lög brotið. Og að halda því fram núna að það sé verið að ljúga að hinum og þessum er fyrir neðan virðingu okkar alþingismanna. Ég hvet til þess að sérstaklega siðvæðingarpostular í pólitík, sem eru nýhreinsaðir af landsfundi sínum fyrir jólin, hætti því að gera öðrum þingmönnum það upp að þeir ljúgi að forseta lýðveldisins.