Innflutningur á landbúnaðarvörum

80. fundur
Þriðjudaginn 01. febrúar 1994, kl. 13:45:40 (3627)


[13:45]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Til þess að koma í veg fyrir misskilning þá vil ég að það komi alveg skýrt fram að eins og lögin voru samþykkt í desembermánuði og samkvæmt úrskurði forsrh. þá er það landbrh. sem fer með innflutningsmál og útflutningsmál landbúnaðarins og verðjöfnunargjöld hans eru í höndum landbrh.