[13:49]
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
Virðulegi forseti. Það er auðvitað ágætt að heyra það að þetta fjármagn verði notað. En ég vil benda á það sem hæstv. ráðherra segir að það hafi ekki verið notaðar nema kannski 600 millj. kr. af þessum milljarði. Milljarðurinn var í raun og veru þannig til kominn að það var ekki nema um helmingurinn af honum sem sértaklega var ætlað sem fjárframlag á síðasta ári. Það hafði verið fært á milli ára. Þannig eru nú aðgerðir ríkisstjórnarinnar, því miður. Það er leitt til þess að vita að ekki skuli hafa verið tekið betur á þessu máli miðað við atvinnuástandið eins og það hefur verið og er.