[13:56]
Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
Virðulegur forseti. Þetta er að sjálfsögðu rétt ábending hjá hv. þm. Hins vegar vek ég athygli á því að það var svo mikið dregið úr vaxtamun að bankarnir munu verða af tekjum miðað við vaxtamuninn eins og hann áður var sem nemur tugum milljóna á ári og mér er ekki kunnugt um að það séu uppi ráðagerðir hjá bönkunum um að jafna það með þjónustugjöldum. En það má eins benda á að það er auðvitað ekki heldur eðlilegt að lántakendur, þ.e. þeir sem skulda hjá bönkunum greiði allan kostnað af ávísanaviðskiptum þeirra sem ekkert skulda. Þarna verða menn að fara bil beggja og viðskrn. mun að sjálfsögðu fylgjast með því að bankarnir ætli sér ekki um of í þessu sambandi og mun þar njóta aðstoðar Samkeppnisstofnunar.