Innheimta þungaskatts

89. fundur
Mánudaginn 14. febrúar 1994, kl. 16:32:50 (4047)

[16:32]
     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Ég held að það sé mjög erfitt að leggja á það mat hvort breyta beri þessu kerfi fyrr en menn vita hver kostnaðarauki af því verður. Ég held að það væri mjög þarft að það yrði upplýst fyrir þingheimi hver kostnaðaraukinn yrði.
    En ég vil undirstrika að það er hægt að svindla þó menn taki upp litaða olíu. Það eru miklir draumóramenn sem trúa því að þá hætti menn svindli í þessum efnum. Eftirlitið verður að vera mjög virkt hvor aðferðin sem er notuð.