Stjórn fiskveiða

90. fundur
Þriðjudaginn 15. febrúar 1994, kl. 13:34:03 (4108)


[13:35]
     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Samkvæmt beiðni þingflokks Alþb. fer þessi umræða fram samkvæmt 3. mgr. 55. gr. þingskapa, þ.e. það verður tvöföldun á ræðutíma sem þýðir að hæstv. ráðherra hefur þá allt að klukkutíma til framsögu, hálftíma í annað sinn og 10 mínútur í hið þriðja og hv. þm. þá 40 mínútur í fyrri umferð og 20 mínútur í síðari umferð.