[17:17]
Vilhjálmur Egilsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Hv. þm. Anna Ólafsdóttir Björnsson talar um að það eigi hver sveitarstjórn væntanlega að sjá um það sjálf að úthluta innan byggðarlags. Ég fékk engin sérstök svör eða leiðbeiningar um það hvernig það ætti að gera enda sagði hún að aðstæður væru svo mismunandi að ég reikna nú ekki með því að það fylgi neinar leiðbeiningar til sveitarfélaga um það hvernig eigi að gera það.
Varðandi áhrifin á veðhæfni og skuldaskil þá skildist mér --- og hv. þm. leiðréttir það ef rangt er --- að hún væri bara á móti þessum skuldum og þess vegna þyrfti ekkert um þær að hugsa.
Í þriðja lagi vaknaði sú spurning að ef einn trillukarl flytur á milli byggðarlaga þá virtist mér svarið vera það að sveitarfélagið sem hann flytti í hlyti að útvega honum kvóta ef hann kæmi með trilluna. En þá vaknar spurningin: Af hverjum á að taka þann kvóta?