[00:49]
Stefán Guðmundsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Mér er ljúft að svara hv. þm. Það sem ég sagði um flutning eða samstarf fyrirtækjanna, ég vék að þessu, hv. þm., fyrst og fremst vegna þess að mér fannst umræðan snúast fyrst og fremst og beinast býsna mikið að ákveðnum fyrirtækjum. Umræðan var fyrst og fremst um það hjá þingmönnum Vesturlands að það væri verið að flytja afla frá þessum fyrirtækjum norður í land og til ákveðinna fyrirtækja. Hins vegar var ég að draga þetta fram vegna þess að samstarf þessara fyrirtækja varð til þess að aflaréttur í þessu byggðarlagi var aukinn og það veit ég að hv. þm. veit.
Hvað varðar hina spurninguna um frjálsa framsalið og skiptakjör þá hefur hv. þm. ekki hlustað á það sem ég sagði. Ég tók það alveg skýrt fram, hv. þm., og hef gert það margsinnis úr þessum ræðustól, að ég vil finna leiðir til til þess að tryggja það að sjómenn verði ekki látnir taka þátt í kvótakaupum. Það hefur margsinnis komið fram og ég trúi ekki að það hafi farið fram hjá hv. þm. nema hann haldi að mér hafi snúist hugur en svo er ekki.