Húsrými Þjóðarbókhlöðu

91. fundur
Miðvikudaginn 16. febrúar 1994, kl. 13:35:22 (4214)


[13:35]
     Kristín Ástgeirsdóttir :
    Virðulegi forseti. Síðar á þessu ári er stefnt að því að opna Þjóðarbókhlöðuna sem hefur verið í byggingu í tæp 20 ár eftir því sem mér telst til. Nú vil ég beina eftirfarandi spurningu til hæstv. menntmrh.: Er það rétt sem hefur heyrst fleygt að Þjóðarbókhlaðan sé þegar orðin of lítil fyrir þá starfsemi sem hún á að hýsa? Ef svo er hvernig hyggst hæstv. menntmrh. bregðast við því?