Álit EFTA-dómstólsins um skýringu samnings um EES

91. fundur
Miðvikudaginn 16. febrúar 1994, kl. 15:14:09 (4264)


[15:14]
     Frsm. 1. minni hluta allshn. (Sólveig Pétursdóttir) :
    Virðulegi forseti. Til þess að skýra þetta aðeins betur. Ef um það er að ræða að leitað sé eftir öflun þessa álits, þá getur verið um að ræða kannski einn þátt af mörgum í einu dómsmáli. Það er því eðlilegt að það sé beðið með að reikna út og dæma málskostnaðinn sem lögmanni ber af öllu málinu í heild sinni heldur en gera það bara fyrir afmarkaðan þátt.