[18:18]
Fyrirspyrjandi (Sturla Böðvarsson) :
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir svarið. Af því dreg ég þá ályktun að fjmrn. geri ráð fyrir því fyrst og fremst að treysta á stöðluð próf og alþjóðlega staðla til að tryggja það að þau tölvukerfi sem opinberar stofnanir fá uppfylli þær kröfur sem verður að gera til þeirra. Hins vegar vil ég vekja athygli hæstv. ráðherra á því að það hefur komið í ljós að jafnvel hefur verið hægt að ,,brjótast inn í`` tölvukerfi sem eru rekin á vegum opinberra stofnana. Þess vegna held ég að það sé afskaplega brýnt og mikið atriði að settar séu strangar reglur um gerð tölvukerfanna og prófun, eins og ráðherrann reyndar lýsti að væri leitast við að gera. Eftir sem áður tel ég nauðsynlegt að skoða það vandlega hvort ekki sé ástæða til að setja sérstaka löggjöf um það með hvaða hætti eigi að löggilda þennan búnað. Við þekkjum það að Löggildingarstofan á vegum ríkisins fer um allar jarðir og löggildir vigtarbúnað í fiskvinnslustöðvum og í ýmiss konar framleiðslu. Ég held að það sé ekki minni ástæða til að ríkisvaldið tryggi það að tölvukerfi sem eru keypt dýrum dómum séu örugg og fylgi ströngum settum reglum um það hvernig þau séu úr garði gerð.
Að öðru leyti, virðulegur forseti, ætla ég ekki að lengja þessa umræðu. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir svörin og treysti því og vænti að hann láti vinna vel að þessu máli og skoði hvort ekki sé ástæða til að setja um þetta sérstaka löggjöf.