[14:03]
Páll Pétursson (andsvar) :
Frú forseti. Ég er að vísu kannski ekki nógu fróður um deyfingar en ég les það út úr frv. að það þurfi að kalla til dýralækni ef um deyfingu er að ræða. Það kann að vera misskilningur minn en ég held mig við þá skoðun mína, sem ég byggi á nokkurri reynslu, að deyfing sé óþörf við mörkun sauðfjár.
Svo má líka spyrja hvort fullorðin kind finni meira til en lamb, sem heimilt er skv. 8. gr. að marka ódeyft. Hálfsmánaðargömlu lambi, sem alls ekki telst fullvaxið dýr, blæðir alls ekkert síður heldur en fullorðinni kind.
Það er algjör óþarfi að marka hross og það eru til önnur ráð til að merkja þau ef menn endilega þurfa á því að halda. Það er hægt að frostmerkja og það eru sársaukaminni aðferðir en að marka þau upp. Auk þess eru menn ekkert ofgóðir að þekkja hrossin sín ef þeir eru að standa í einhverjum viðskiptum. En ég teldi það mikla goðgá að láta sér detta í hug að marka fullorðið hross öðruvísi en að deyfa það.