[23:19]
Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Þessi texti sem hér var fluttur er á engan hátt svar við þeirri spurningu sem ég bar fram. Mér er fullkunnugt um það og öllum þingmönnum að sjútvrn. hefur sent vinnuplagg embættismannanefndarinnar til sjútvn. og beðið um álit á því. Mín spurning vék ekki að því. Mín spurning vék að tillögum ríkisstjórnarinnar, hvort ríkisstjórnin hefði gert tillögu í málinu. Við höfum síðustu daga verið að upplifa mikið drama í kringum tillögu ríkisstjórnarinnar í búvörulagamálinu og að lokum kom tillaga frá samstarfsflokkunum til landbn. Það var að vísu nokkuð erfið fæðing en það kom tillaga frá samstarfsflokkunum í ríkisstjórn til landbn. Mín spurning er: Hefur komið tillaga frá ríkisstjórninni varðandi útfærslu efnisþátta 1. gr.? Hæstv. sjútvrh. sagði ekkert um það. Hann hefur hins vegar skrifað bréf til sjútvn. þar sem hann hefur reifað þann möguleika að þessir efnisþættir verði klofnir í sundur og fjallað um suma þeirra í tengslum við lögin um fiskveiðistjórnun. Það svarar heldur ekki spurningunni hvort ríkisstjórn Íslands hafi mótað sér tillögu um það efnisatriði sem er bakgrunnur 1. gr. frv. Það kom ekkert svar við þeirri spurningu í andsvari hæstv. sjútvrh.