[17:04]
Árni M. Mathiesen (andsvar) :
Hæstv. forseti. Hv. 4. þm. Austurl. bregður sér í hlutverk ferðamálafrömuðarins hér í sinni síðustu ræðu, en það var ekki að heyra að hann væri mikill stuðningsmaður þeirrar atvinnugreinar þegar hann talaði hér fyrr í dag. Hv. þm. er frægur fyrir útúrsnúninga. En ef hann heldur að ég hafi verið að viðurkenna það að vera illa undir þennan málflutning búinn með minni síðustu ræðu, þá er hann líka að viðurkenna að hann væri sjálfur illa undir umræðuna búinn.