[17:17]
Sturla Böðvarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég tel alls ekki, vegna orða hv. 3. þm. Vesturl., óframkvæmanlegt að standa að 8. gr. eins og hún er. Það er val hafnarstjórnanna og þá eigenda hafnanna hvenær hafnarsjóðir leggja í það að setja peninga í einstök fyrirtæki. Ég ítreka það að ég treysti viðkomandi sveitarstjórnum og hafnarstjórnum til að taka þær ákvarðanir.
Varðandi það að athugasemdir hafi komið fram frá einstökum sveitarfélögum um að það ætti að styrkja upptökumannvirki og það ætti að gera breytingar á styrkhlutfalli vegna hafnarmannvirkjanna þá verð ég að segja að í mörgum tilvikum var um misskilning að ræða. Í fyrsta lagi þann að menn áttuðu sig ekki á því að með breytingunum á Hafnabótasjóði var hann efldur og það var gert ráð fyrir því að hann veitti frekari styrki. Það að lækka styrkjahlutfallið í einstökum hafnarmannvirkjum segir ekki alla söguna. Þar sem hafnirnar eru veikastar og þurfa helst á stuðningi að halda verður 60% hlutfall í bryggju og getur orðið til viðbótar 15% styrkur úr Hafnabótasjóði og síðan 15% lán úr Hafnabótasjóði einnig. Þannig að þar sem um er að ræða litlar hafnir, tekjulágar, þá verður engin breyting með þessu frv.
En varðandi upptökumannvirkin þá er það alveg rétt, það komu athugasemdir. Ég tel að þær athugasemdir hafi verið mjög óeðlilegar og hafi beinst að einstökum höfnum sem hafa upptökumannvirki skipa á sínum vegum. Þannig að ég hef satt að segja ekki gert mikið úr þeim athugasemdum sem þar komu fram hjá ágætum fulltrúum sveitarfélaga.