Lagaráð Alþingis

103. fundur
Þriðjudaginn 08. mars 1994, kl. 18:25:59 (4863)


[18:25]
     Flm. (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Ég hef á þskj. 530 leyft mér að flytja till. til þál. um lagaráð Alþingis. Tillögugreinin hljóðar svo:
    ,,Alþingi ályktar að setja á stofn lagaráð til ráðgjafar um lögfræðileg álitaefni, einkum hvað varðar stjórnarskrá lýðveldisins, mannréttindi og alþjóðlegar skuldbindingar og til að gæta lagasamræmis. Skylt verði að leggja fyrir lagaráð öll stjórnarfrumvörp þar sem reyna kann á ákvæði stjórnarskrár.
    Lagaráð skal skipað þremur mönnum, einum tilnefndum af Lagastofnun háskólans, einum tilnefndum af Lögfræðingafélagi Íslands og einum tilnefndum af Dómarafélagi Íslands. Skulu þeir fullnægja skilyrðum um embættisgengi hæstaréttardómara.
    Nefndir Alþingis og þingflokkar geta leitað álits lagaráðs.
    Kostnaður við störf lagaráðs greiðist af Alþingi.``

    Svona hljóðaði tillögugreinin, herra forseti. Það hefur ítrekað komið í ljós að það skortir mjög á að Alþingi hafi óháðan aðila til að kveða upp úr um lögfræðileg álitaefni. Þetta var mjög bagalegt í fyrra þegar við eyddum löngum tíma í að deila um EES-samninginn og hvort hann bryti í bága við stjórnarskrá. Þetta var viðkvæmt deilumál í fyrra og menn voru ekki á eitt sáttir. Mannréttindamál og alþjóðlegar skuldbindingar eru mál sem við megum ekki hrapa að þegar um lagasetningu er að ræða.
    Nú hefur það bæst við að Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að Alþingi hefði orðið á í messunni og ekki gætt lagasamræmis. Búvörulög væru ekki í þeim stíl að þau héldu þar sem þau áttu að halda og mikill tími hefur farið í það á þessu þingi að reyna að bæta þar úr. Það er mjög sterk röksemd sem er komin ný inn í málið en þetta mál flutti ég upphaflega á síðasta þingi.
    Við síðustu endurskoðun þingskapalaga var rædd sú hugmynd að setja á stofn sérstaka stjórnlaganefnd skipaða alþingismönnum sem að hluta til hefði getað leyst þann vanda sem hér er við að glíma en sú hugmynd hlaut ekki byr að því sinni.
    Alþingismenn geta leitað ráðgjafar hjá starfsmönnum Alþingis eða annars staðar og ráðuneytin hafa á sínum snærum lögfræðinga og það er út af fyrir sig góðra gjalda vert. En það er alls ekki nægilegt þegar um mjög viðkvæm og flókin úrlausnarefni er að ræða og það er enginn óháður aðili til þess að fást við slík mál. Sumir starfsmenn þingflokka eru löglærðir en þeirra úrskurðir hljóta að vera gagnrýndir af fulltrúum annarra stjórnmálaflokka. Lögfræðingar ráðuneytanna lúta að sjálfsögðu húsbóndavaldi síns ráðherra og þar af leiðir að ekki er hægt að skapa nægilegt traust. Það sama kann að gilda þegar ráðherra velur tiltekna lögfræðinga til að kanna ákveðin mál. Það leiðir af sjálfu sér að stjórnarandstaða kann að tortryggja álit sem ráðherra eða starfsmenn annarra flokka gefa.
    Ríkisendurskoðun er nokkuð hliðstæð. Hún var deild í fjmrn. þangað til 1987 og laut stjórn fjmrh. Þessu var breytt að tilhlutan ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar og Ríkisendurskoðun gerð að sjálfstæðri og óháðri stofnun undir Alþingi. Það blandast engum hugur um það að þetta var mikið framfaraspor. Ríkisendurskoðun öðlaðist sjálfstæði við að verða óháð fjmrh. og hefur eftir breytinguna getað beitt sér af öryggi og jafnvel beint gagnrýni að fjmrh. þannig að Ríkisendurskoðun er orðin öflug og þörf stofnun í stjórnkerfi okkar. Það er einmitt hliðstæð aðferð sem ég tel að við eigum að beita í þessu efni með lagaráðið.
    Meðal grannþjóða okkar er lögfræðilegri ráðgjöf við þjóðþingin háttað með ýmsu móti. Danska þingið hefur látið taka saman yfirlit um lögfræðilegt eftirlit og sérfræðiráðgöf í ýmsum þjóðþingum Evrópuríkja og það fylgir með þskj. sem fskj. og ég hvet hv. nefnd til þess að kynna sér fskj. vandlega.
    Í öllum þeim ríkjum sem þar eru tiltekin hvílir sú skylda á þingforseta að athuga hvort frumvörp séu í samræmi við stjórnarskrá áður en þau eru tekin á dagskrá. Ef samt sem áður koma upp efasemdir um meðferð máls hvort það sé í samræmi við stjórnarskrá, þá er mismunandi úrræðum beitt í einstökum ríkjum. Danir hafa til þessa beitt þeirri aðferð að forseti þingsins hefur í samráði við þingskapalaganefndina notið ráðgjafar lagadeildar og nefndadeildar þingsins og lagadeildar dómsmálaráðuneytisins. Þetta hefur valdið gagnrýni og uppi eru hugmyndir um stofnun sérstaks lagaráðs þar sem álit dómsmálaráðuneytis gætu verið vilhöll.
    Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Pouls Nyrups Rasmussens var beinlínis kveðið á um stofnun lagaráðs, en þar segir í lauslegri þýðingu að ríkisstjórnin muni í samráði við þingflokkana leggja fram frv. til laga um lagaráð. Lagaráðið skal vera ráðgefandi um meginálitamál, sérstaklega hvað varðar túlkun stjórnarskrár, skyldur vegna mannréttinda og aðrar alþjóðlegar skuldbindingar.
    Það kom fram nokkur gagnrýni í danska þinginu á því að ríkisstjórnin sem slík færi að taka þetta mál upp á sína arma. Það væri eðlilegra að þingið hefði um það forustu og ég er því sammála.
    Herra forseti. Það er algerlega ófullnægjandi skipan sem Alþingi býr við. Ef maður ber það saman við hvernig staðið er að málum í öðrum löndum þá er það gert með miklu markvissari hætti víðast hvar heldur en hér. Sem betur fer á Hæstiréttur síðasta orðið endanlega í slíkum málum, en það gerist ekki fyrr en lög hafa verið sett og mál höfðað og það er óskynsamleg skipan. Það væri hægt að koma í veg fyrir margháttuð slys ef réttur og óháður aðili leiðbeindi þinginu við meðferð mála. Að sjálfsögðu girti þetta ekki fyrir að Hæstiréttur kynni að þurfa að dæma í slíkum málum og ef svo færi t.d. að Alþingi samþykkti lög sem ekki stæðust eða einhver teldi fara í bága við stjórnarskrá og hæfi málarekstur.
    Á þskj. er líka prentað sem fskj. lög um laganefnd, nr. 48 14. júní 1929. Þau lög hafa aldrei orðið virk og sú skipan sem þar er lögð til er ekki nægilega markviss að mínum dómi. Nú þarf Alþingi að stunda mikla færibandavinnu við að leiða í lög tilskipanir frá Evrópubandalaginu og það styður enn þörf þess að setja lagaráð á stofn.
    Ég tel, herra forseti, að hér sé um mjög mikilvægt mál að ræða. Við þingmenn höfum stundum leitað til Lagastofnunar háskólans en það er ekki fullnægjandi. Hún hefur í sumum tilfellum t.d. neitað þingnefndum um álitsgerðir og borið við tímaskorti og líka erindum frá þingflokki.
    Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til hv. allshn. og ég treysti því að hv. allshn. sjái nauðsyn þess að koma lagaráði á fót og geri sitt til þess að tillagan megi hljóta afgreiðslu á þessu þingi.