[15:19]
Jón Kristjánsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég vil vara hæstv. fjmrh. við því að ávarpa forustumenn verkalýðshreyfingarinnar þannig að þeir séu að leika leikrit þó þeir mæti á miðstjórnarfundi í þeim flokki sem þeir fylgja. Þessir menn eru fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar í landinu og réttkjörnir. Þessir menn líta svo á að þeir hafi verið að semja um ákveðin atriði í kjarasamningum. Þeir hafi verið að semja um ákveðnar framkvæmdir á ákveðnu árabili og þeir hafi verið að semja um framkvæmdir sem ætti að ljúka áður en samningstímabilinu ljúki um næstu áramót. Og þeir telja að á þessu ári þurfi að framkvæma um 1,7 milljarða kr. til að standa við þetta. Þetta er ekki flókið reikningsdæmi og þeir líta ekki svo á að það eigi að flytja þessar upphæðir á milli ára. Þetta er ekki flóknara en þetta.
Ég vil vara við því að tala þannig um þessa samninga og þá sem þá gerðu að þeir séu að einhverjum leikaraskap þó þeir minni á þetta á þeim vettvangi þar sem þeir koma fram á fundum. Jafnvel þó það sé hjá flokknum þeirra.
Ég veit ekki hvort það er þannig á miðstjórnarfundum Sjálfstfl. að menn séu að leika leikrit sem þar halda ræður. Það getur vel verið að svo sé. En ég vil vara sérstaklega við þessu.