Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Forseti vill láta þess getið að fyrirhugað er að að lokinni atkvæðagreiðslu um önnur dagskrármál verður settur nýr fundur til að hægt verði að afgreiða þetta frv., þ.e. ljúka 3. umr. og atkvæðagreiðslu um þetta frv. ásamt öðrum málum sem á dagskránni eru enn órædd, ef leyft verður. Væntir forseti að það geti gengið eftir.