Framleiðsla og sala á búvörum

106. fundur
Fimmtudaginn 10. mars 1994, kl. 13:52:03 (4956)


[13:51]
     Páll Pétursson (um fundarstjórn) :
    Frú forseti. Ég vek athygli forseta á því að hæstv. landbrh. er ekki kominn til fundar. Mér skilst að hann hafi verið eða sé á leiðinni frá Akureyri og mér finnst alveg ófært að taka þetta mál til umræðu að hæstv. landbrh. fjarstöddum. Ég sé að bæði hæstv. forsrh. og hæstv. utanrrh. eru hér viðstaddir og það tel ég einnig vera mjög nauðsynlegt, að þeir séu viðstaddir þessa umræðu, einnig hæstv. fjmrh. En ég tel algera grundvallarforsendu til að hægt sé að taka málið til 2. umr. að hæstv. landbrh. sé á fundinum. Ég bendi á að það eru fleiri mál á dagskrá svo að það þyrfti ekki að leysa fundinn upp þó að dokað væri

þangað til hæstv. landbrh. kemur í salinn.