Varamaður tekur þingsæti

107. fundur
Mánudaginn 14. mars 1994, kl. 15:01:10 (5027)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 10. mars 1994:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþingmaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., Hjálmar Jónsson prófastur, Sauðárkróki, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Pálmi Jónsson, 2. þm. Norðurl. v.``


    Hjálmar Jónsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.