[15:08]
Ólafur Ragnar Grímsson :
Virðulegi forseti. Fyrir nokkrum vikum síðan, við 1. umr. um eitt þingmál, óskuðu þrír þingflokkar, þingflokkur Framsfl., þingflokkur Alþb. og þingflokkur Kvennalistans, eftir því að 1. umr. yrði frestað. Forseti neitaði að verða við þeirri ósk og lýsti því yfir að það yrði haldið áfram með málið þrátt fyrir ósk frá þremur þingflokkum. Nú gerist það hins vegar hér að í annað sinn er atkvæðagreiðslu um hafnalög frestað samkvæmt ósk eins þingflokks, þingflokks Sjálfstfl. Þessi atkvæðagreiðsla átti að fara fram fyrir helgi. Þá hafði stjórnarflokkunum ekki tekist að tryggja það að nægilega margir stjórnarþingmenn sinntu vinnuskyldu sinni og væru í þingsalnum. Atkvæðagreiðslunni var frestað og það var ekki gerð athugasemd við það. Nú gerist það hins vegar í annað sinn að mistekist hefur að tryggja það að nægilega margir stjórnarþingmenn séu í vinnu sinni og óskað er eftir því að málinu verði frestað. Ég vil þess vegna spyrja forseta hver eru rökin fyrir því að neita ósk þriggja þingflokka um að fresta 1. umr. um mál en verða ítrekað við ósk frá einum þingflokki um að fresta atkvæðagreiðslu um það mál sem hér er til umfjöllunar. Er forseti þingsins að mismuna þingflokkum með þeim hætti sem hér kemur fram vegna þess að þrátt fyrir það að fyrri ákvörðunin um að neita ósk frá þremur þingflokkum hafi ítrekað verið til umræðu hefur forseti þingsins ekki lýst yfir ágreiningi við þá ákvörðun sem þá var tekin.
Það er mjög mikilvægt að það sé samhengi og samræmi í því hvernig forseti bregst við óskum þingflokka. Ég ætla í sjálfu sér ekki að gera athugasemd við það að þessari atkvæðagreiðslu sé frestað ítrekað að ósk þingflokks Sjálfstfl. en ég skil ekki samhengið að

neita óskum annarra þingflokka varðandi meðferð mála en verða ítrekað við óskum þingflokks Sjálfstfl.