Jöfnun á símkostnaði

108. fundur
Mánudaginn 14. mars 1994, kl. 15:56:33 (5054)


[15:56]
     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Það sem er því til fyrirstöðu að jafna símkostnað til fulls eru annars vegar tæknileg atriði og hins vegar er ástæðan sú að til þess vantar fjármagn. Þetta sígur alltaf í rétta átt og er minni munur nú en áður á slíku. Ég vil taka fram að það er verið að stækka þau svæði sem eru undir sama númeri sums staðar þar sem þannig stendur á og það er alltaf verið að draga úr þessum mismun og gengur vel vil ég segja en við getum ekki fengið allt í einu.