[16:57]
Frsm. 2. minni hluta landbn. (Gísli S. Einarsson) (andsvar) :
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Páli Péturssyni fyrir að vera sá maður að taka á sig mistökin með öðrum af því kerfi sem við búum við. Ég er fús til þess að taka á með hv. þm. Páli Péturssyni um það að breyta því kerfi til þess að bændur eigi möguleika að komast af.
Ég hef sagt hér áður í ræðu að Alþfl. er tilbúinn til að verja íslenskan landbúnað og ég skal standa við það. En ef menn ætla að gefa heimildir til álagningar, eins og var komið í frv., að gefa heimildir til álagningar á allar landbúnaðarafurðir, það þýðir hveiti, sykur, kaffi, te og hvaða afurðir sem er, ef það á að fara að veita þannig heimildir til einhvers aðila, þá segjum við stopp og um það snýst málið, hv. þm. Páll Pétursson. En að verja vinnu og landbúnað á Íslandi erum við tilbúnir á þann máta sem ég hef lýst.