Framleiðsla og sala á búvörum

109. fundur
Þriðjudaginn 15. mars 1994, kl. 17:31:52 (5089)


[17:31]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Landbn. eða a.m.k. formaður landbn. fékk til verks færustu lögfræðinga á því sviði sem völ er á til að fjalla um það mál sem hér er til umræðu. Þeir fengu það verkefni að gera lagatextann svo skýran og ljósan sem verða mætti og jafnframt að öllu sem fram kom í desemberlögunum skyldi til skila haldið. Ég tel að þessir lögfræðingar hafi unnið vel að sínu verki og þess vegna sé lagatextinn skýr og ljós og réttaróvissu eytt.