[19:48]
Frsm. 1. minni hluta landbn. (Egill Jónsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það kom hér fram afskaplega mikilvæg yfirlýsing af hendi hv. þm. Gísla Einarssonar þar sem hann sagði að það hefði ekkert komið fram í máli mínu sem hefði hnekkt breytingartillögum sem við erum flm. að. Þetta er náttúrlega mikið grundvallaratriði vegna þess að ræða mín fól það í sér að styrkja þessar breytingartillögur. Ég var í því að hafna skýringum Gísla Einarssonar og því sem kemur fram í nál. hans. Niðurstaðan og þessi orð eru því afskaplega mikilvægt innlegg í þessa umræðu.