Framleiðsla og sala á búvörum

109. fundur
Miðvikudaginn 16. mars 1994, kl. 01:42:14 (5157)


[01:42]
     Frsm. 1. minni hluta landbn. (Egill Jónsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þetta andsvar gefur ekki tilefni til mikilla svara af minni hálfu. Ég hef áður skýrt þetta mál og túlkað það með skýrum hætti hvað efnislega felst í brtt. okkar fjórmenninganna. Ég mundi kannski rétt til viðbótar mega benda á það, svo það tapaðist ekki alveg niður, að stjórnarandstaðan hefur líka flutt brtt. og þær eru svo að segja sama efnis og brtt. okkar fjórmenninganna þannig að þegar menn eru að spyrja út og suður um það hvað þetta mál þýði þá vitna ég til þess að á borðum manna eru tvær tillögur, svo að segja alveg sama efnis, þannig að menn geta farið í eigið hús til þess að meta það hvað felst í slíkum tillögum.