Vátryggingastarfsemi

110. fundur
Miðvikudaginn 16. mars 1994, kl. 16:08:42 (5223)


[16:08]
     Finnur Ingólfsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er bara ein spurning til hæstv. ráðherra: Hefur farið fram einhver úttekt á því hver er munur á iðgjöldum tryggingafélaga á hinu Evrópska efnahagssvæði, þ.e. samanburður á því hver iðgjöldin eru hjá íslenskum vátryggingafélögum eftir tryggingaflokkum, áhættu og ábyrgð sem því er samfara og svo aftur hjá þeim tryggingafélögum sem starfandi eru annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu?