Rannsóknarráð Íslands

112. fundur
Föstudaginn 18. mars 1994, kl. 10:57:49 (5305)


[10:57]
     Tómas Ingi Olrich (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli hv. þm. á því að í aðdraganda málsins hefur verið opinber umfjöllun um það á málþingum. Og þingmönnum gefst að sjálfsögðu kostur á því og eiga mjög gjarnan

að kynna sér slík málþing og sjá þar í hvaða farvegi þessi mál eru þannig að með ýmsum hætti hefur gefist tækifæri til að fylgjast með því hvernig þessi mál hafa þróast og það hefur að sjálfsögðu gefið mönnum tækifæri til þess að fá innsýn í málið.